152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

húsnæðismarkaðurinn.

[11:15]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Það er þannig að á vegum þjóðhagsráðs höfum við forsætisráðherra, og það ráð allt, verið með hóp að störfum, sem vonandi skilar af sér í næstu viku, til að taka utan um þetta. Eitt af erindunum sem ég átti til Finnlands fyrr í þessari viku var að hitta finnsku stjórnina hvað varðar húsnæðismál, hvernig þau hafa náð að búa til samkomulag við sveitarfélögin og aðra um samstarf á þessu sviði — hlutir sem ég hef talað um áður úr þessum ræðustól, eitthvað sem við munum reyna að þróa til að tryggja að til séu lóðir á næstunni til að við getum vænst þess að þær verði byggðar. Einn þáttur sem þar kemur inn er það sem kallað hefur verið skjalatöskuverktakar. Ég hef aðeins áhyggjur af því ef það verða í vaxandi mæli, í ljósi umræðunnar sem við höfum verið með um bankasöluna og kannski lausbeislaðan fjármálamarkað, aðilar sem geta (Forseti hringir.) í raun og veru farið að stjórna því hvenær byggt er. Þess vegna held ég að það þurfi (Forseti hringir.) að setja skýrari reglur hjá sveitarstjórnunum um það þegar þeir fara inn á þróunarreiti, (Forseti hringir.) hvenær eigi að byggja, hvenær þær lóðir verði tilbúnar, ég held að það sé mikilvægt.