152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:17]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Það er ekki boðlegt að formaður Framsóknarflokksins, hæstv. innviðaráðherra, komi hér upp og segi okkur að honum hafi liðið illa. Um það snýst verkefnið ekki. Við þurfum að ræða hér sem Alþingi Íslendinga um hversdagslegan rasisma, hvernig við bregðumst við og hvernig þessi vinnustaður ætlar að axla þá pólitísku ábyrgð sína að sjá til þess að hver einasti Íslendingur sé velkominn í þessu landi. Það er verkefnið. Ég sé að hæstv. ráðherra gengur hér, hristandi höfuðið, út úr salnum og hefur engan skilning á pólitískri ábyrgð sinni gagnvart hverri einustu manneskju sem býr í þessu landi. Við verðum að axla þessa ábyrgð og ég hvet hæstv. forseta Alþingis til að koma í veg fyrir að löggjafarþing Íslands, að Alþingi Íslendinga, klúðri því mikilvæga máli að sjá til þess að við lærum af reynslunni, að við setjum rasismann á dagskrá og við horfumst öll í augu við okkar eigin fordóma af auðmýkt og því lítillæti sem okkur ber. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)