152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:18]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég er sleginn og dapur yfir því að heyra í hæstv. innviðaráðherra. Hann er ekki búinn að svara neinum óskum um að koma hingað til þingsins til að ræða um þessi ummæli sem skóku samfélagið heldur betur, ummæli sem tugþúsundum Íslendinga svíður undan með beinum hætti því þeir eru þolendur í þeirri umræðu. Þegar hæstv. innviðaráðherra fær tækifæri til að enduróma afsökunarbeiðni sína til þessa risastóra hóps úr ræðustól Alþingis þá talar hann um sveitarstjórnarkosningarnar. Þá talar hann um að þeir sem gagnrýndu orð hans, kölluðu eftir pólitískri ábyrgð, kölluðu eftir virðingu gagnvart fólki sem er af öðrum uppruna — þá segir hann að við höfum verið að reyna að klekkja á Einari Þorsteinssyni í Reykjavík. Ég kalla eftir því að hæstv. innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins og Framsóknarflokkurinn allur viðurkenni það í verki og orði að svona orðræða eins og formaður Framsóknarflokksins viðhafði um (Forseti hringir.) fólk af öðrum uppruna verði ekki liðin, að þeir kenni ekki stjórnarandstöðunni (Forseti hringir.) um að gera sér einhvern pólitískan leik úr því og reyna að koma því þannig fyrir að (Forseti hringir.) það hafi verið reynt að klekkja á Einari Þorsteinssyni út af þessu. (Forseti hringir.) Innviðaráðherra skuldar tugþúsundum Íslendinga aðra afsökunarbeiðni vegna þess að hér áðan (Forseti hringir.) þá dró hann hana til baka og hann gerði það með fyrirlitningu.

(Forseti (BÁ): Forseti verður að áminna hv. þingmenn um að virða ræðutímann en fara ekki freklega yfir hann eins og hér hefur gerst.)