152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:20]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Nú hef ég starfað í allnokkurn tíma innan Framsóknarflokksins. Ég er gríðarlega stoltur af þeim störfum sem Framsóknarflokkurinn hefur staðið fyrir, ekki síst varðandi jafnréttismálin, ekki síst varðandi það að bera hag allra í þessu landi fyrir brjósti. Framsókn hefur staðið sig vel á undanförnum árum, tekið utan um málaflokka sem við höfum haldið að væru jafnvel að verða hornreka í samfélaginu. Ég er sannfærður um að þær tilraunir sem eru gerðar til að ýfa upp mál, sem er, og öllum ætti að vera það ljóst, búið að setja til hliðar, og það kemur mér ekkert á óvart að einhverjum gremjist það (Forseti hringir.) — en ég er sannfærður um að þetta er Alþingi ekki til sóma. Það er ekki Alþingi til sóma (Forseti hringir.) að haga sér á þennan hátt og taka þátt í þessu leikhúsi.