um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Þegar nokkrir þingmenn voru hér fyrir nokkrum árum staðnir að ógeðslegu orðfæri á Klausturbar þá hélt forseti Alþingis ræðu yfir þingheimi, messaði yfir þingheimi um góð gildi og háttprýði og mikilvægi þess. Það er nefnilega ekki einkamál þegar þingmenn eða þegar ráðherrar gerast sekir um óboðlegan málflutning, rasísk ummæli eins og í tilviki hæstv. innviðaráðherra. Það er ekki einkamál. Við hér á Alþingi kölluðum eftir því að hann gerði hreint fyrir sínum dyrum hér í þingsal. Við því varð ráðherra ekki. Höfum það í huga. Þetta er eiginlega í fyrsta skipti sem hann kemur hingað inn á Alþingi og ræðir þetta mál. Og hver eru hans viðbrögð? Jú, það eru allir svo vondir við hann. (Forseti hringir.) Þetta snýst allt um Einar Þorsteinsson eða sveitarstjórnarkosningar, (Forseti hringir.) það eru allir svo vondir við formann Framsóknarflokksins. Hann kvartar og kveinar (Forseti hringir.) en tekur ekki ábyrgð. Þetta er óboðlegt.