152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:23]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég kom hér upp í pontu áðan og spurði hæstv. innviðaráðherra spurninga sem ég taldi nokkuð einfaldar. Ég segi kannski ekki að ég hafi borið mikla von til þess að svarið yrði algerlega í samræmi við það sem ég myndi vilja helst. En svarið var engu að síður gríðarleg vonbrigði enda fékk ég svar við hvorugri spurningunni sem ég beindi að ráðherra. Spurningarnar voru ekki flóknar. Fyrri spurningin var: Fellur háttsemin undir ákveðin ákvæði laga — sem hún augljóslega gerir — sem sett voru hér á síðasta þingi? Þá velti ég fyrir mér hvers vegna við erum að setja lög ef ekki má fylgja þeim, ef það er bara einkamál á milli fólks hvort lögum sé fylgt eða ekki. Hin spurningin var: Hvað ætlið þið að gera? Hvað ætlið þið að gera til þess að berjast gegn kerfisbundnum rasisma í þessu landi? Svarið var ekkert. Svarið var bara ekkert. Þetta eru gríðarlega mikil vonbrigði. (Forseti hringir.) Ég vil fyrst og fremst gagnrýna hæstv. innviðaráðherra fyrir að hafa ekki svarað spurningunum, en það alvarlegasta er að það að ekkert svar hafi komið þýðir auðvitað að svarið er ekki neitt.