152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:24]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Í ljósi þess að hæstv. ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson kaus að draga þingið og sveitarstjórnarkosningar inn í vandræðaskap sinn, þá meintu rasistaorðræðu sem hann viðhafði, langar mig að segja eitt: Þingið hefur í mánuð óskað eftir viðveru ráðherra í þingsal til að ræða þessi mál. Þingið hefur leitað liðsinnis forseta með tilvísan í þingskapalög, nokkuð sem forseti hefur haft að engu. Þingið hefur óskað eftir ráðherra í óundirbúnar fyrirspurnir, nokkuð sem ráðherra hefur ekki orðið við. Ég vísa því til föðurhúsanna að einhver tengsl séu milli þessarar orðræðu og sveitarstjórnarkosninga. Hversu sjálfhverfir geta menn verið? Ég spyr. Þetta er, líkt og hér hefur komið fram, umræða af svo miklu stærri skala en þeim hversu marga borgarfulltrúa Framsókn tínir af Sjálfstæðisflokknum.