152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:26]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Virðulegur forseti. Hér hefur hæstv. innviðaráðherra komið upp og beðist afsökunar. Hann hefur reyndar gert það opinberlega og á fundi á milli þeirra tveggja aðila sem þarna voru, hans og framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Hverju er verið að reyna að ná fram hér í þessum þingsal? Hvað erum við að gera? Og ég get alveg sagt það, þekkjandi hæstv. innviðaráðherra mjög vel, hvort sem fólk trúir því og hv. þingmenn, að ég veit að hæstv. innviðaráðherra er einlægur í sinni afsökunarbeiðni, hvort sem það er hér eða þegar hæstv. ráðherra hitti viðkomandi. En öll gerum við vissulega mistök á lífsins leið. Og hvað gerum við þá? Jú, við komum fram og biðjumst afsökunar og það hefur ráðherra gert.