um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Mér er brugðið eftir að hafa hlustað á hæstv. innviðaráðherra sem hefur ekki mætt hér í þingsal eftir að hafa verið á góðu giggi á búnaðarþingi þann 31. mars. Hann hefur ekki sést hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma síðan. Auðvitað er holur hljómur í afsökunarbeiðni manns og einlægni manns gagnvart lítilsvirðandi og niðurlægjandi orðum í garð konu þegar hann kemur hingað, eftir að hafa jafnað sig á búnaðarþingi í mánuð eða svo, og viðrar þau sjónarmið sín að umræðan í samfélaginu öllu, að gagnrýnin í samfélaginu öllu, stafi af því að innviðaráðherranum hafi gengið vel í kosningunum í haust. Þetta er ævintýralega hallærislegt. Og fyrst hann er að tala um fylgi og fyrst hann er að vísa í stuðning Framsóknarflokksins þá má nú alveg geta þess að í könnunum er ríkisstjórnin fallin. (Forseti hringir.) Það lekur fylgið af Framsókn vegna þessarar hrokafullu afstöðu í málum eilíflega og alltaf hreint.