152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:28]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er dálítið alvarlegt mál, ég held að við áttum okkur öll á því. Þess vegna er mjög eðlilegt að spyrja: Í hvaða samhengi er þetta alvarlegt mál? Af því að ríkisstjórnin setti þessi lög hér fyrir tiltölulega stuttu og við erum að spyrja hvort svona ummæli séu á forræði þeirra laga. Voru þessi ummæli það alvarleg að þau varði við lög, lögin sem ríkisstjórnin sjálf setti? Þetta er mjög eðlileg spurning, óháð öllum afsökunarbeiðnum og því um líku, því það sem ráðherra segir er ekkert einkamál, það er það bara ekki. Það er einmitt sérstaklega tekið fram í lögunum að fólk getur ekki afsalað sér réttindum sem verða til af þeim lögum, hvað þá gagnvart ráðherra sem á að útskýra fyrir okkur hvernig á að koma fram með tilliti til þeirra laga sem hann sjálfur setti. Við viljum vita samhengið í þessu. Þess vegna var fyrirspurnin bara mjög eðlileg. Er þetta innan marka laganna að skilningi ráðherra?