um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Það kom mér svo sem ekkert á óvart að heyra þingmann Sjálfstæðisflokksins koma hér upp í pontu og nýta síðasta daginn til að hnýta í meiri hluta borgarstjórnar Reykjavíkur. Talandi um lóðaskort og minnugur þess að hér kom inn frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins sem er varaþingmaður og lýsti stöðu Reykjavíkurborgar sem svo grafalvarlegri að hún þyrfti nánast að fara á gjörgæslu, þannig var nú lýsingin, það yrði kalla til sérfróða aðila til að bjarga Reykjavíkurborg frá gjaldþroti. Hann lagði síðan inn fyrirspurn í framhaldi af því og innviðaráðherra er búinn að svara þessari fyrirspurn. Staða Reykjavíkur er sú besta á öllu landinu. Samanborið við öll sveitarfélög á Íslandi er staða Reykjavíkurborgar best. Borgarsjóður er með skuldahlutfall sem er langbest á Íslandi. (Forseti hringir.)
Virðulegur forseti. Til þess að menn séu ekki að heyja hér kosningabaráttu í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga er bara rétt að þingið fari heim.