um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Hverju er verið að reyna að ná fram? spurði hv. þingmaður Framsóknarflokksins. Hæstv. innviðaráðherra og formaður flokksins var spurður út í mögulegt brot á lögum þar sem hann viðhafði vanvirðandi orðbragð í garð konu af erlendum uppruna. Hann hefur ekki sést á Alþingi eða í fjölmiðlum síðan hann beitti hinum rasísku orðum sínum. Hann yfirgefur salinn án þess að svara þessari einföldu spurningu. Hann yfirgefur salinn og svarar ekki spurningunni um lögbrot. Hverju er verið að reyna að ná fram? Hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson segist stoltur af jafnréttisbaráttu Framsóknarflokksins á sama tíma og varaformaður (Forseti hringir.) flokksins gerir allt til þess að hnekkja skýrum úrskurði kærunefndar jafnréttismála (Forseti hringir.) vegna lögbrota ráðherra við ráðningu í embætti ráðuneytisstjóra.