152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:35]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Forseti. Hv. þm. Ágúst Bjarni Garðarsson spurði eins og aðrir hafa sagt: Hverju er verið að reyna að ná fram? Því er auðvelt að svara. Ummæli hæstv. ráðherra voru nógu alvarleg í sjálfu sér en þau eru ekki einstök. Þau eru hluti af mynstri sem við höfum séð birtast á undanförnum dögum og vikum með ljótum ummælum um varaþingmann sem hér situr oft, með aðgerðum lögreglunnar og þess vegna einmitt er enn brýnna að einn af æðstu ráðamönnum þjóðarinnar leggi sitt af mörkum til að uppræta þennan hversdagslega rasisma sem hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir nefndi svo. Öll gerum við mistök, vissulega, og við biðjumst afsökunar. Í þessu tilfelli nægir ekki minna en að hæstv. ráðherra biðji allt það fólk sem hér býr og verður illa fyrir þessum ummælum afsökunar.