um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Takk fyrir áminninguna. Já, hverju erum við að reyna að ná fram? Auðvitað er þetta þannig að það falla þessi ummæli. Ég þekki hæstv. innviðaráðherra ekki af hegðun eins og hann gerðist sekur um þarna á búnaðarþingi, þvert á móti. Þess vegna bregður okkur öllum svo mikið vegna þess að hæstv. ráðherra og flokkur hans stendur fyrir ákveðin gildi sem allt í einu molnaði svolítið undan. Þess vegna höfum við kallað eftir því að hæstv. ráðherra komi hingað og gefi þinginu skýrslu um málið og tali úr þessum ræðustól beint til þeirra þúsunda Íslendinga sem voru líka særðir og meiddir út af þessum ummælum. Það voru fleiri en bara þeir sem ummælunum er beint gegn sem særðust, meiddust. Þess vegna þurfum við að ræða þetta hér úr þessum ræðustól. Þegar síðan hæstv. ráðherra fékk tækifæri til að endurtaka afsökunarbeiðni sína til alls þessa fólks og árétta gildin sem Framsóknarflokkurinn, og hann sjálfur, stendur fyrir þá gerði hann lítið úr málinu. Hann hætti að vera gerandi, hann gerði sjálfan sig að þolanda. (Forseti hringir.) Hann sagði að allir þeir sem hafa verið að gagnrýna hann í þessum sal, og hafa þar með endurómað (Forseti hringir.) gagnrýni í samfélaginu, séu að beita einhverri pólitík. Hann tók afsökunarbeiðni sína til baka.