152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:38]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Hér er spurt: Hvað ætlum við að gera? Ég get svarað hvað ég hef gert. Ég hef tvisvar sinnum verið framsögumaður á máli sem minn ráðherra, Ásmundur Einar Daðason, flutti, sem er breyting á lögum um málefni innflytjenda, um móttöku einstaklinga sem sækja um vernd. Það er gríðarlega mikilvægt að við séum hér sem þjóð að taka á móti þessu fólki og beina því á rétta staði. Já, það er rasismi hér á Íslandi, kannski meiri en við þorum að viðurkenna. En í 29. ræðu formanns eins minnihlutaflokks hér á Alþingi gat hann ekki sannfært mig um að það þyrfti að henda þessu máli út í þriðja skipti. Hvar er rasisminn? Ég er búin að rembast eins og rjúpan við staurinn að koma þessu máli í gegn og nú í þriðja skiptið og það á að reyna að henda þessu út aftur. Hvar er rasisminn?