um fundarstjórn.
Herra forseti. Það er búið að fara vel og býsna málefnalega yfir það hér af hverju þetta mál er töluvert stærra og mikilvægara en árangur Framsóknarflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum og mig langar … (Gripið fram í.) — Í alvöru, hv. þingmaður? Þetta mál, rasismi á Íslandi, er minna mál en árangur Framsóknarflokksins í sveitarstjórnarkosningum? (Gripið fram í.) Það er nýtt. En af því að forseti spurði hér áðan þá ætla ég að vísa í 61. gr. þingskapalaga, með leyfi forseta:
„Forseti getur á fundartíma heimilað ráðherrum og formönnum stjórnmálaflokka að gefa sérstaka yfirlýsingu og fulltrúum annarra flokka að bregðast við henni ef ástæða er til.“
Þetta báðum við um hér í ljósi þess að fyrir nokkrum vikum leið hver óundirbúni fyrirspurnatíminn á fætur öðrum án þess að hæstv. innviðaráðherra sæi sér fært að mæta til að ræða nákvæmlega þetta. Ég segi því enn og aftur: Því er vísað til föðurhúsanna að hér sé um einhverja sérstaka tímasetningu í ljósi sveitarstjórnarkosninga að ræða. Þetta er fyrsta tækifæri þingsins til að ræða við ráðherra um þessi ummæli.