152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:42]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Ég ætla að vera í liði með þeim sem berst gegn rasisma og hvers konar fordómum. Ég hlustaði hins vegar hér á hæstv. innviðaráðherra áðan. Ég horfði beint á hann þegar hann flutti sína ræðu og ég skynjaði og fann hversu miður honum þykir þetta og það gat ekki farið fram hjá neinum hér í þessum sal hversu mikið þetta hefur reynt á hann. Það sem hann sagði hér og ég bið menn að hafa í huga var að hann þyrfti að líta í eigin barm. Hann þyrfti að líta í eigin barm og reyna að átta sig á því hvort framkoma hans og tal væri með þeim hætti að þetta gæfi tilefni til þessara upphlaupa. Hann hefur beðist afsökunar og í þessum þætti á í hlut kær vinkona mín og ég hef átt samtöl við hana, sem ég ætla ekki að upplýsa hér um, en þau hafa gert upp á milli sín og átt hreinskiptin samtöl þar sem afsökunarbeiðni hefur verið móttekin. (Forseti hringir.) Ég mun virða þá afsökunarbeiðni og ég tel að innviðaráðherra hafi verið maður að meiri að eiga þau samtöl við mína kæru vinkonu (Forseti hringir.) og framganga hans hér áðan gerði hann meiri manni en áður.