um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Það er mín tilfinning og kannski og vonandi hef ég rangt fyrir mér að ummæli sem hér hafa verið látin falla séu til þess ætluð að reyna að mála upp Framsókn sem einhvers konar rasískan flokk. Ég ætla að vona að svo sé ekki. Um er að ræða samskipti milli tveggja einstaklinga úti í bæ. (Gripið fram í: Ráðherra.) Alveg rétt, ráðherra, svo sannarlega. Þau mál hafa verið leidd til lykta af þeim aðilum. Það bara liggur fyrir. Það hefur komið fram í fjölmiðlum. (Gripið fram í.) Þess vegna segi ég það, hæstv. forseti: Við eigum að virða það. Ég veit að okkur líður ekki vel með þá umræðu sem hefur verið í gangi í samfélaginu varðandi rasisma. Við eigum að taka fast á því, hvar sem hann kann að vera, og ég mun ekki láta mitt eftir liggja í þeirri baráttu.