152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:46]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Þingmenn verða að skilja í hvaða hlutverki við erum hér á þessum vinnustað, til hvers við erum kosin og hvaða ábyrgð við berum sem alþingismenn og opinberar persónur í þessu landi. Það verður að gerast hér á hinu háa Alþingi að við ræðum um rasismann á Íslandi, að við höfum pólitískt og siðferðilegt þrek til þess og missum hann ekki ofan í flokkspólitískar grafir einstök tilvik eða kosningabaráttu. Þetta mál er svo miklu stærra en það. Það er verkefni Alþingis og það er þess vegna sem ég kom upp, til að koma því til skila við hæstv. forseta að það væri verkefni okkar. Hið einstaka mál sem er tilefnið á einmitt að vera tilefni til þess að taka sjálfsskoðunina alla leið og axla hina pólitísku ábyrgð á rasismanum á Íslandi.