um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Umræðan hérna núna í fundarstjórn er mikilvæg og hún er alvarleg. Orð líkt og rasismi og að vinna gegn rasisma á Íslandi — ég held að við séum öll sammála hér inni að við viljum ræða þau mál og vinna gegn rasisma því að hann á ekki að líðast. En við skulum reyna líka að aðskilja málin. Við erum hér að ræða persónur og leikendur þar sem búið er að ganga frá, það er búið að biðjast opinberlega afsökunar. Munurinn á þingmanni og ráðherra er sá að mál sem þessi verða opinber. Þau hafa áhrif á hann, þau hafa áhrif á alla aðila í kringum hann og líka báða málsaðila. Við skulum ekki gleyma því. Þessu hefur verið lokið þeirra á milli og við þurfum að halda áfram. Við megum ekki gleyma þessu samt sem áður. Við þurfum að ræða þetta og það hefur verið gert innan þingflokks Framsóknar og það verður gert innan Framsóknar og við vinnum þetta áfram, því í hvernig samfélagi viljum við vinna í og búa í? (Forseti hringir.) Ég sjálf el börnin mín þannig upp að verði þeim á þá eiga þau að biðjast afsökunar og svo höldum við áfram og við lærum af reynslunni. (Forseti hringir.) Pössum að hlutir sem þessir gerist ekki aftur. Það er það sem við þurfum að vinna með áfram.