um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Rasísk ummæli ráðherra í ríkisstjórn Íslands eru ekki einkamál hans. Það er svo vont að heyra hér hvern þingmanninn á fætur öðrum og ráðherra í ríkisstjórn Íslands koma upp og skilja ekki það grundvallaratriði að hér er verið að ræða kerfislegan rasisma á Íslandi. Hæstv. ráðherra tekur sjálfur þá ákvörðun hér í ræðustól þegar hann mætir í fyrsta sinn í heilan mánuð að kenna pólitískum andstæðingum um að fólki misbjóði orð hans, hans rasísku orð. Líklega beindi hann orðum sínum helst til Sjálfstæðisflokksins sem núna horfir á hvern kjörinn fulltrúa á fætur öðrum tætast af flokknum og til Framsóknarflokksins í skoðanakönnunum. (Forseti hringir.) Við erum að tala um allt annað. Þetta snýst ekkert um næstu kosningar (Forseti hringir.) heldur kerfislega mismunun í garð fólks af erlendum uppruna.