152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:50]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Aðeins um þessi grundvallaratriði máls. Það snýst ekki um einhverja tvo einstaklinga úti í bæ, eins og þingmaður Framsóknarflokksins komst hér að orði, þetta snýst um ummæli ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Það er það sem málið snýst um. Það er langtum stærra en að einhver maður úti í bæ hafi látið falla einhver ummæli, sem við vitum öll hver eru, í partíi úti í bæ. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins nefnir hér að það sé búið að biðjast afsökunar en auðvitað skiptir það máli um afsökunarbeiðni að hún sé einlæg, ekki að ráðherra komi hingað eftir mánaðarfrí frá þingi og bæti í með einhverju tali um að verið sé að þyrla upp þessu máli vegna þess að honum hafi gengið vel í kosningum og muni ganga vel í kosningum. Svo vil ég nefna hið augljósa þegar Framsóknarmenn tala um að þessu máli sé lokið: Svo er alls ekki. Það liggur fyrir kæra hjá siðanefnd Alþingis um það (Forseti hringir.) hvort ráðherra hafi gerst brotlegur við siðareglur. Málinu er sannarlega ekki lokið.