152. löggjafarþing — 72. fundur,  29. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:51]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Nú er það mjög skýrt í umræðunni að það er orðrómur um það hver þessi ummæli voru. Við skulum hafa það á hreinu. Hvorki sá sem fékk ummælin né sá sem sagði þau hefur endurtekið þau orð en lýsingin á þeim orðum fellur undir skilgreiningu laganna á því sem telst vera ósæmilegt með tilliti til þeirra laga. Þess vegna spyrjum við ráðherra um álit hans á því, óháð því hvað hann sagði, heldur einmitt bara hvort þessi ummæli falli undir skilgreiningu laganna, hvort þau falli undir skilgreiningu siðareglna ráðherra eða hvort þau falli undir siðareglur þingmanna. Þetta er álit ráðherra á því til þess að við getum haldið áfram eða gert upp hvar þessi mörk liggja. Fór ráðherra yfir þau eða ekki? Það er það sem við spyrjum um því að lýsingarnar á því hvað hann sagði samkvæmt þeim sem upplifði þessi ummæli fara fram yfir mörk laganna.