málefni innflytjenda.
Herra forseti. Málefni hælisleitenda er líklega stærsta viðfangsefni þjóða heims nú um stundir og verður það áfram um fyrirsjáanlega framtíð. Það er því afskaplega mikilvægt og það er nauðsynlegt að brugðist sé við á þann hátt sem er líklegastur til að skila árangri fyrir sem flesta, hjálpa sem flestum þeirra sem þurfa mest á hjálp að halda, ekki að búa til neikvæða og jafnvel hættulega hvata. Þess vegna er það mikið áhyggjuefni að ríkisstjórnin skuli nú enn á ný leggja fram frumvarp sem gengur þvert á það sem verið er að gera á öðrum Norðurlöndum, ekki hvað síst í Danmörku því þar er markmiðið að ná betri stjórn á vandanum til þess að geta gert sem mest gagn fyrir þá sem þurfa mest á hjálpinni að halda. En sem betur fer fer þetta mál aftur til nefndar og vonandi einnig til umsagnar í fjárlaganefnd.