152. löggjafarþing — 73. fundur,  29. apr. 2022.

atvinnuréttindi útlendinga.

482. mál
[12:13]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002. Hinn 8. júlí 2021 undirritaði utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra fyrir Íslands hönd nýjan fríverslunarsamning við Bretland en formlegar samningaviðræður stóðu yfir frá september 2020 til júní 2021. Í tillögu frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings Íslands, Konungsríkisins Noregs og furstadæmisins Liechtenstein og Sameinaða konungsríkisins Stóra-Bretlands og Norður-Írlands, sem samþykkt hefur verið í atkvæðagreiðslu hér á Alþingi, eru listaðar upp nauðsynlegar lagabreytingar vegna fríverslunarsamnings og annarra samninga við Bretland vegna útgöngu þess úr ESB og EES. Þar kemur meðal annars fram að nauðsynlegt sé að gera breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga sem kveði á um að nánustu aðstandendum þjónustuveitenda sem starfi tímabundið á Íslandi verði gert kleift að sækja um dvalar- og atvinnuleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar.

Með frumvarpi þessu eru lagðar til þær breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga sem nauðsynlegar þykja vegna framangreinds fríverslunarsamningsins við Bretland og vísað er til í framangreindri þingsályktunartillögu.

Virðulegi forseti. Í ljósi framangreinds eru í frumvarpinu lagðar til breytingar hvað varðar veitingu tímabundinna atvinnuleyfa til einstaklinga sem flytjast til innan viðskiptafyrirtækis með starfsstöð hér á landi. Þannig er lagt til að í nýrri 4. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga verði kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að veita tímabundið atvinnuleyfi hér á landi að tilteknum skilyrðum uppfylltum þegar atvinnurekandi sendir starfsmann sinn tímabundið til starfa við starfsstöð sína hér á landi enda sé um að ræða starfsmann atvinnurekanda með ótímabundna ráðningu sem stjórnandi eða sérfræðingur við starfsstöð hans erlendis.

Sambærilega heimild er að finna í 9. gr. gildandi laga um atvinnuréttindi útlendinga en tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli þess ákvæðis veitir lakari réttindi hér á landi en tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli 8. gr. laganna. Eru breytingarnar því lagðar til þannig að tryggt verði að framangreindir starfsmenn njóti sömu réttinda og þeir sem fá veitt tímabundin atvinnuleyfi á grundvelli 8. gr. gildandi laga um atvinnuréttindi útlendinga. Með sömu réttindum er m.a. átt við að heimilt verði að veita nánustu aðstandendum hlutaðeigandi starfsmanna dvalar- og atvinnuleyfi hér á landi á grundvelli fjölskyldusameiningar en slíkt er ekki heimilt hvað varðar aðstandendur þeirra sem fá tímabundin atvinnuleyfi veitt á grundvelli 9. gr. laganna. Þá er jafnframt heimilt að veita tímabundin atvinnuleyfi á grundvelli 8. gr. laganna til lengri tíma en heimilt er á grundvelli 9. gr. laganna.

Virðulegi forseti. Líkt og komið hefur fram í máli mínu er tilefni þessa frumvarps fríverslunarsamningur sem Ísland hefur gert við Bretland í tengslum við útgöngu þessi úr Evrópusambandinu og úr Evrópska efnahagssvæðinu. Er þá um að ræða almennar breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga en í ljósi þess samnings þykir nauðsynlegt að leggja til umræddar breytingar á lögunum.

Að lokum legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.