atvinnuréttindi útlendinga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ef ég skil efni breytingartillögu hv. þingmanns rétt þá er þetta sú sama og hv. þingmaður er með frumvarp um. Ég vil nú bara byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir það að setja þessi mál á dagskrá hér þó svo að við vitum öll að þetta er líka inni í frumvarpi sem hæstv. dómsmálaráðherra hyggst leggja fram á þessu vorþingi. Efnislega er ég að sjálfsögðu sammála þessari tillögu og geri ráð fyrir að hún komi til umræðu í nefndinni en minni bara á að hún er á fleiri en einum stað þannig að með einhverjum hætti þurfum við að klára það mál. Ég hef litið svo á að þar sem hún sé inni í frumvarpi hæstv. dómsmálaráðherra þá sé hún líka fram komin af hálfu ríkisstjórnarinnar og ég sé að við hv. þingmaður erum sammála um efni hennar.