152. löggjafarþing — 73. fundur,  29. apr. 2022.

atvinnuréttindi útlendinga.

482. mál
[12:22]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið og umræðuna. Mig langar aðeins að byrja á því að koma inn á það sem hv. þingmaður nefnir hér, þ.e. dvalarleyfi sem flóttafólk frá Úkraínu fær. Þarna er í fyrsta skipti verið að virkja 44. gr. útlendingalaga um fjöldaflótta þar sem talið var að mjög margt fólk myndi koma hingað frá Úkraínu og sú hefur líka orðið raunin. Til þess að hægt væri að afgreiða þær umsóknir sem allra hraðast var þessi ákvörðun tekin. Ég tek algerlega undir það með hv. þingmanni að við værum að búa þessu fólki betri aðstæður hér á Íslandi ef atvinnuleyfi fylgdi með, þ.e. ef ekki þyrfti að sækja um atvinnuleyfi sérstaklega eins og staðan er í dag. En við megum samt ekki rugla því saman við það að fólk geti ekki fengið vinnu. Það er allt önnur umræða. Fólkið getur fengið vinnu hér á landi og einhver fjöldi Úkraínubúa, af því að við erum sérstaklega að ræða þá hér, hefur fengið atvinnuleyfi hjá Vinnumálastofnun. Vinnumálastofnun hefur auk þess auglýst eftir störfum hjá atvinnurekendum og veit ég til þess að um 200 vilyrði fyrir störfum hafa borist til stofnunarinnar. Þau hjá Vinnumálastofnun eru líka að undirbúa nýja ferla út af þessu mikilvæga máli.

En til þess að svara spurningu hv. þingmanns sem hún beindi til mín þá gerðum við í VG ýmsar athugasemdir við drögin að því frumvarpi sem hæstv. dómsmálaráðherra lagði að lokum fram í ríkisstjórn og það hefur tekið heilmiklum breytingum. Það fer núna til þinglegrar meðferðar og við þurfum að sjá hvað kemur út úr þeirri umræðu.