152. löggjafarþing — 73. fundur,  29. apr. 2022.

atvinnuréttindi útlendinga.

482. mál
[12:40]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sína ágætu ræðu. Mig langar aðeins að koma inn á það sem hv. þingmaður ræddi um atvinnuleyfi vegna þess að þetta er akkúrat eitt af þeim atriðum sem ég bað okkar ágætu Vinnumálastofnun um að taka saman gögn fyrir mig um. Það kemur í ljós að meðalafgreiðslutími atvinnuleyfa er jú eitthvað mismunandi eftir flokkum eins og gengur og gerist, en í heildina er meðalafgreiðslutíminn í öllum flokkum árin 2020 og 2021 í kringum þrjár vikur. Ég veit hins vegar alveg að það eru til dæmi, eins og hv. þingmaður nefndi, um sex mánuði eða jafnvel lengri tíma. Það segir mér það að annaðhvort er þetta vegna þess að það er langur tími sem það tekur að fá dvalarleyfin eða að í einhverjum tilfellum, sem við vissulega þekkjum, kann að vanta einhver gögn sem þarf að afla til þess að það sé hægt að veita leyfið. Í reynd er það þannig að ef öll gögn fylgja umsókn til Vinnumálastofnunar þá treystir hún sér oft til að veita þessi leyfi samdægurs, innan tveggja til þriggja daga og í mesta lagi innan viku. En það er bundið því að það séu þá öll gögn sem fylgja með. Markmið stofnunarinnar er að meðalafgreiðslutími sé undir 21 degi og það er eitthvað sem hún leggur ríka áherslu á. Að því sögðu þá viljum við auðvitað að gera sem allra best í þessu. En ég þakka þingmanninum fyrir ræðuna.