152. löggjafarþing — 73. fundur,  29. apr. 2022.

sorgarleyfi.

593. mál
[14:03]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um sorgarleyfi, en með sorgarleyfi er átt við leyfi frá launuðum störfum á innlendum vinnumarkaði í kjölfar barnsmissis sem og við fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu eða andvanafæðingu eftir 22 vikna meðgöngu. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands látast árlega um 20 börn undir 18 ára aldri hérlendis og má því gera ráð fyrir að um 45 einstaklingar að meðaltali, að teknu tilliti til fósturforeldra, stjúpforeldra og annarra sem gegnt hafa foreldraskyldum gagnvart viðkomandi börnum, verði fyrir barnsmissi á ári hverju án þess að vera með trygga framfærslu vegna fjarveru frá vinnumarkaði af þeim sökum. Lögfestingu sorgarleyfis hér á landi er m.a. ætlað að tryggja foreldrum á innlendum vinnumarkaði svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis og eftir atvikum svigrúm til að styðja eftirlifandi systkin til að takast á við breyttar aðstæður.

Meginmarkmið frumvarpsins er að tryggja foreldrum á innlendum vinnumarkaði leyfi frá störfum og greiðslur til að koma til móts við tekjutap í tengslum við fjarveru frá vinnumarkaði í kjölfar barnsmissis. Við höfum um langt árabil í lögum um fæðingar- og foreldraorlof tryggt foreldrum sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í allt að þrjá mánuði hvoru um sig í kjölfar andvanafæðingar eftir 22 vikna meðgöngu og í tvo mánuði hvoru um sig í kjölfar fósturláts eftir 18 vikna meðgöngu. Þess má geta að í lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, er kveðið á um að andist langveikt eða alvarlega fatlað barn séu áframhaldandi tekjutengdar greiðslur sem foreldri hefði ella átt rétt á heimilar í allt að einn mánuð frá andláti barns enda séu tiltekin skilyrði uppfyllt. Ég tel ríka áherslu til að jafna aðstöðu foreldra á innlendum vinnumarkaði hvað varðar leyfi frá störfum, hvort sem um er að ræða fósturlát, andvanafæðingu eða barnsmissi enda er ljóst að andlát barns undir 18 ára aldri er ekki síður áfall fyrir foreldra en þegar foreldrar verða fyrir því að barn þeirra fæðist andvana eða þegar um fósturlát er að ræða.

Verði frumvarp þetta að lögum er gert ráð fyrir að ákvæði um greiðslur vegna andvanafæðingar og fósturláts falli brott úr lögum um fæðingar- og foreldraorlof og ákvæði um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna og þannig verði kveðið á um rétt foreldra við framangreindar aðstæður í heildstæðri löggjöf.

Virðulegi forseti. Meginefni frumvarpsins er að tryggja foreldrum á innlendum vinnumarkaði sem verða fyrir barnsmissi sorgarleyfi í allt að sex mánuði sem og greiðslur til að koma til móts við tekjutap á umræddu tímabili í tengslum við fjarveru frá vinnumarkaði. Meginefni frumvarpsins er jafnframt að tryggja foreldrum utan vinnumarkaðar, eða í minna en 25% starfshlutfalli, þar á meðal námsmönnum, sorgarstyrk verði þeir fyrir barnsmissi. Þá er gert ráð fyrir að réttur foreldra til leyfis frá störfum í þrjá mánuði í kjölfar andvanafæðingar eftir 22 vikna meðgöngu og í tvo mánuði vegna fósturláts eftir 18 vikna meðgöngu, samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof, verði áfram tryggður í fyrirhuguðum lögum um sorgarleyfi sem og greiðslur til að koma til móts við tekjutap á umræddu tímabili. Enn fremur er gert ráð fyrir að greiðslur í sorgarleyfi, vegna barnsmissis, andvanafæðingar eftir 22 vikna meðgöngu eða fósturláts eftir 18 vikna meðgöngu, miðist við 80% af meðaltali heildarlauna eða reiknaðs endurgjalds á tilteknu viðmiðunartímabili og að hámarksgreiðslur verði 600.000 kr. á mánuði en það er sama hámarksfjárhæð og er innan fæðingarorlofskerfisins. Þannig muni sorgarleyfið fela í sér mánaðarlegar greiðslur yfir ákveðið tímabil til foreldra sem verða fyrir barnsmissi, andvanafæðingu eða fósturláti. Einnig er gert ráð fyrir að foreldrum verði heimilt að nýta rétt sinn til sorgarleyfis að hluta eftir atvikum samhliða minnkuðu starfshlutfalli og þá jafnvel yfir lengra tímabil. Ég tel þann sveigjanleika afar mikilvægan enda má ætla að það geti verið jákvætt fyrir einstaklinga sem verða fyrir fyrrnefndum missi að halda tengingu við vinnustað eins og þeir treysta sér til hverju sinni á meðan þeir vinna úr missinum.

Ég vil sérstaklega vekja athygli á því að í samræmi við markmið frumvarpsins er skýringin á hugtakinu foreldri rýmri í frumvarpinu en þær skýringar sem almennt eiga við um hugtakið, svo sem í gildandi löggjöf hér á landi, og geta því fleiri en tveir einstaklingar átt rétt á sorgarleyfi vegna andláts barns en um er að ræða sjálfstæðan rétt hvers og eins. Er þannig gert ráð fyrir að undir hugtakið foreldri falli, ásamt kyn- og kjörforeldrum og/eða forsjáraðilum barns samkvæmt ákvæðum barnalaga, aðrir sem gegnt hafa foreldraskyldum gagnvart barni í lengri tíma en síðustu 12 mánuði fyrir barnsmissi. Stjúp- eða fósturforeldri getur því í kjölfar barnsmissis átt rétt á greiðslum í sorgarleyfi hafi það verið í skráðri sambúð eða gift foreldri og/eða forsjáraðila viðkomandi barns eða verið með barnið í fóstri í lengri tíma en 12 mánuði fyrir barnsmissi. Þannig er sorg fjölskyldunnar í heild viðurkennd óháð fjölskyldugerð en með því er efni frumvarpsins ætlað að koma til móts við fjölbreytt fjölskyldumynstur í íslensku samfélagi. Í því sambandi má einnig nefna að í frumvarpinu er réttur foreldris til greiðslu í sorgarleyfi og til sorgarstyrks tryggður óháð kynferði, enda hugtakið foreldri ekki kyngreint í frumvarpinu.

Gert er ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist framkvæmdina enda lagt til að um verði að ræða áunnin réttindi á vinnumarkaði auk þess sem gert er ráð fyrir að framkvæmdin verði eðlislík framkvæmd laga um fæðingar- og foreldraorlof sem fellur undir málefnasvið stofnunarinnar. Ætla má að frumvarpið sé til þess fallið að tryggja sem jafnasta stöðu kynjanna á vinnumarkaði enda er lagt til að foreldrar eigi jafnan rétt til sorgarleyfis í kjölfar barnsmissis. Þannig er gert ráð fyrir að foreldrar hafi sömu möguleika til að annast sína nánustu og þiggja sjálfir aðstoð og umönnun í kjölfar þess að þeir verða fyrir barnsmissi, andvanafæðingu eða fósturmissi.

Frú forseti. Það er vel þekkt að áföll í lífinu geta haft áhrif á heilsu fólks til lengri eða skemmri tíma. Með það í huga tel ég að við getum öll verið sammála um mikilvægi þess að huga sérstaklega vel að stuðningi við börn og barnafjölskyldur í kjölfar þess að barn innan fjölskyldu andast. Með því að tryggja foreldrum á innlendum vinnumarkaði svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis samhliða greiðslum í sorgarleyfi leyfi ég mér að fullyrða að í það minnsta í sumum tilfellum megi koma í veg fyrir mögulegan og/eða varanlegan heilsubrest sem geti m.a. dregið úr virkni á vinnumarkaði til lengri tíma litið. Ég hef þannig mikla trú á því að með því að tryggja foreldrum á innlendum vinnumarkaði svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis megi auka líkur á að viðkomandi eigi farsæla endurkomu á vinnumarkað og taki virkan þátt í samfélaginu að nýju eftir slíkan missi, svo ekki sé talað um þann ávinning sem hlýst af því að veita foreldrum svigrúm til að styðja við eftirlifandi systkin.

Í ljósi efnis þessa frumvarps geri ég ekki ráð fyrir mikilli andstöðu við frumvarpið hér í þinginu. Ég hvet okkur sem hér störfum til að taka höndum saman og tryggja afgreiðslu þessa mikilvæga frumvarps nú á vorþingi ef þess er nokkur kostur. Með því myndi Ísland skipa sér í hóp forysturíkja hvað þetta varðar en í nágrannaríkjum okkar er almennt ekki að finna sambærilegan rétt foreldra og frumvarpið gerir ráð fyrir. Þó var tveggja vikna sorgarleyfi lögfest í Bretlandi árið 2020 og sex mánaða sorgarleyfi í Danmörku árið 2021.

Að lokum legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.