152. löggjafarþing — 73. fundur,  29. apr. 2022.

sorgarleyfi.

593. mál
[14:11]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. félagsmálaráðherra einlæglega fyrir að leggja fram þetta góða mál og ég tek undir lokaorð ráðherrans. Ég á heldur ekki von á öðru en að þetta mál njóti víðtæks stuðnings hér á Alþingi og líka í samfélaginu öllu því að auðvitað er það alveg rétt sem ráðherrann segir, það skiptir óskaplega miklu að stutt sé við börn og barnafjölskyldur í þeim aðstæðum sem frumvarpið fjallar um, þegar foreldrar missa barn ýmist í fæðingu, á síðari stigum meðgöngu eða síðar meir. Ég vildi hins vegar beina því til hæstv. ráðherra í ljósi þessarar hugmyndafræði, fallegu hugmyndafræði vil ég leyfa mér að segja, sem þarna býr að baki, hvort ekki sé ráð og hvort ekki sé lag að horfa jafnframt til þeirra barna sem missa foreldra og þess fólks sem missir maka á þeim kafla lífsins að enn eru ung börn á heimilunum. Ég held að við þekkjum öll þessar sögur. Ég spyr hvort ráðherra sjái fyrir sér að útvíkka frumvarpið þannig að það geti líka tekið til þeirra fjölskyldna.