sorgarleyfi.
Hæstv. forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir umræðuna. Það var aðeins skoðað þegar byrjað var á frumvarpinu, akkúrat það atriði sem við hv. þingmaður ræðum hér og ég veit að það var mat ráðuneytisins að gera þetta í fleiri skrefum. Eins og ég sagði hér áðan, ef ég gef mér það að sátt myndist um þetta mál hér á Alþingi og sátt um að þetta verði eitt af þeim málum sem við klárum í vor, þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að við hefjum strax vinnu við að skoða þetta nánar. En mig langar að nefna annað líka sem gæti verið enn meiri framtíðarmúsík, það er að skoða sorgarleyfi foreldra eldri barna, jafnvel að 25 ára aldri. Þetta er eitthvað sem ég held að við þurfum að skoða. En tökum eitt skref í einu og þetta er mikilvægt fyrsta skref, sorgarleyfi við barnsmissi, andvanafæðingu eða fósturlát, og ég vonast til þess að við náum að klára þetta mál í vor.