152. löggjafarþing — 73. fundur,  29. apr. 2022.

sorgarleyfi.

593. mál
[14:18]
Horfa

Helga Þórðardóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil nú kannski ekki kalla þetta andsvar. Ég vil þakka hæstv. félagsmálaráðherra fyrir þetta góða frumvarp. Það er svo gott að hrósa hér á þingi í öllum þessum látum. Mér er þetta frumvarp alveg sérstaklega kært. Hvers vegna? Jú, vegna þess að ég hef starfað í 22 ár sem kennari á Barnaspítala Hringsins og þegar ég sá þetta frumvarp varð mér hugsað til allra barnanna sem ég hef kvatt og foreldra þeirra sem ég hef kynnst náið. Það hefði verið gott að fá þetta fyrr en gleðjumst yfir þessu. Það er mjög gott að þetta sé komið í höfn. Takk.