sorgarleyfi.
Virðulegur forseti. Ég vil fá að taka undir þakklæti í garð hæstv. ráðherra fyrir að leggja þetta mál fram. Þetta er vissulega eitt af þeim málum sem er ánægjulegt að fjalla um hér í þessari ágætu pontu og í þessum sal. Það er ágæt tilfinning að upplifa það stundum að maður sé að gera eitthvert gagn hér í þessu ágæta húsi. Það er því sérstaklega gleðilegt að mál sem þetta fái að komast á dagskrá og til umræðu og vonandi verður áframhald á þeirri þróun þegar þing kemur aftur saman.
Málið er í grunninn eitt af áhersluatriðum ríkisstjórnarinnar í þeim ríkisstjórnarsáttmála sem var saminn í upphafi þessa kjörtímabils. Það hefur verið farið ágætlega yfir efnisatriði þess þannig að kannski er ekki þörf á að endurtaka þau. En mig langar bara heilt yfir að lýsa yfir mikilli ánægju með þetta frumvarp ráðherra. Mér finnst vera vel náð utan um þær praktísku hliðar sem fylgja þeim hryllilega atburði sem hér er undir. Auðvitað er það svo að það er ekkert sem bætir á nokkurn hátt þann harmleik sem fólk gengur í gegnum við þessar aðstæður. En mér finnst það mjög skynsamlegt að ríkið taki til sín þann mannlega þátt að reyna að gera það sem hægt er til þess að einfalda líf fólks við þær aðstæður og létta eins og hægt er á álagi og áhyggjum hvað varðar þessi praktísku atriði. Mér finnst það mjög skynsamlegt hvernig frumvarpið nálgast þessi praktísku atriði, bæði hvað varðar tekjustyrkinn eða tekjumódelið, með skynsamlegu þaki en líka þannig að það er í alvöru til gagns og getur hjálpað fólki í þessum aðstæðum. Mér finnst einnig mjög skynsamlegt og fallegt hvernig farið er með skilgreiningar en í löggjöf varðandi börn og foreldra er oft svolítið einstrengingsleg skilgreiningin á því hverjir eru foreldrar og kannski skiljanlega, ég er ekkert að gera lítið úr því. En ég hef áður gert að umtalsefni þessar einstrengingslegu skilgreiningar á því hverjir eru foreldrar. Ég ætla ekki að gera lítið úr því að auðvitað þarf löggjafinn að hafa það á hreinu yfirleitt hverjir eru foreldrar barns, að sjálfsögðu. Í þessu tilfelli er skilgreiningin rýmkuð þannig að þetta á eftir atvikum líka við um stjúpforeldra eða fósturforeldra, þá aðila sem eru að auki í hinu eiginlega foreldrahlutverki gagnvart barni, og það finnst mér fallegt og raunsætt mat á því hvernig raunveruleikinn er, hann er ekki alltaf niðurnjörvaður í öllum excel-skjölum lífsins eins og hið opinbera krefst oft.
Ég ætlaði nú bara að fá að koma hingað upp og þakka ráðherra fyrir frumvarpið. Það er gleðilegt þegar hið opinbera axlar mannlegu hliðina og ábyrgðina sem fylgir því að reyna að bæta líf fólks eins og mögulegt er, ég tala nú ekki um þegar það horfist í augu við harmleiki í sínu lífi.