sorgarleyfi.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, innilega fyrir það frumvarp sem hann hefur hér lagt fram fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Þetta er löngu tímabært. Ég tel að við öll eigum ástvini eða vini sem hafa staðið í þeim sporum að þurfa að kveðja líf sem við höfðum séð fyrir okkur að myndi eiga glæsta framtíð hér með okkur öllum. Þetta frumvarp tryggir foreldrum sem missa barn sorgarleyfi eins og hér hefur komið fram. Það er alþekkt að þegar foreldrar standa frammi fyrir einni mestu sorg sem hægt er að lenda í þá fer allt líf úr skorðum og það getur tekið fólk langan tíma, ár, að finna aftur taktinn í tilverunni. Vitaskuld er það svo að ekkert kemur í veg fyrir þann missi sem við erum hér að fást við. En það er gott til þess að vita að samfélagið í heild er tilbúið til að grípa utan um það fólk eins vel og hægt er.
Hér hefur komið fram í máli ráðherra að önnur ríki hafa stigið það skref að setja sorgarleyfi inn í sína löggjöf. Það þótti tíðindum sæta þegar það var gert í Bretlandi árið 2020 og svo í Danmörku 2021. Gert er ráð fyrir rétti foreldra eftir 22 vikna meðgöngu og svo vegna fósturláts eftir 18 vikna meðgöngu og að fólk geti átt rétt á 600.000 kr. á mánuði, sem er þá hámarksgreiðsla í sorgarleyfi. Hér var haft samráð við Sorgarmiðstöðina og Vinnumálastofnun. Nú fer þetta mál til umfjöllunar í nefnd og ég á ekki von á öðru en að nefndin muni fagna því frumkvæði sem hér er sýnt. Stundum er það svo að þau mál sem við erum að fjalla um hér á þinginu geta virst köld. Við höfum verið hér í langan tíma að ræða nokkuð kaldan veruleika á fjármálamarkaði en svo koma stundir eins og þessar þar sem frumvarp snertir streng í hjörtum okkar allra. Þá á maður ekki von á öðru en að það frumvarp muni ganga vel í gegnum þingið. Ég þakka ráðherra kærlega fyrir og vænti þess að frumvarpinu verði vel tekið hjá þingmönnum öllum.