sorgarleyfi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Þetta var mjög gott andsvar. Ég er algerlega sammála því að það sé ágætisviðmið að sorgarleyfi sé veitt í allt að þrjá mánuði frá þeim degi er andvanafæðing á sér stað eftir 22 vikna meðgöngu. Það er ágætisviðmið og mætti jafnvel vera neðar, jafnvel eftir 20. viku. Það er alveg sjálfsagt. Ég legg hins vegar til breytingu þannig að 2. mgr. 8. gr. orðist þannig: Sé um að ræða fósturlát eða ef móðir lætur eyða fóstri eftir 18 vikna meðgöngu á foreldri sjálfstæðan rétt til sorgarleyfis í allt að — í frumvarpinu stendur tvo mánuði en ég tel eðlilegt að það séu þrír mánuðir þarna. Ég tel að réttur til sorgarleyfis eigi ekki eingöngu að eiga við um fósturlát heldur líka þegar kona lætur eyða fóstrinu eftir 18. viku. Mér finnst samræmi í því. Mér finnst ekki rétt að þetta eigi eingöngu við um fósturlát heldur ætti líka að eiga við þá raun þegar kona hefur tekið þá ákvörðun að eyða fóstri eftir 18. viku. Það finnst mér réttlátt og í samræmi við það ástand og þá sorg sem foreldrar fara í gegnum þegar þau taka ákvörðun um að láta eyða fóstri eftir 18. viku.