sorgarleyfi.
Forseti. Þetta frumvarp til laga um sorgarleyfi er hið besta mál og frábært að þetta sé á dagskrá og komið inn í þingið. Ég vil byrja á að tala um 3. gr. en þar segir, með leyfi forseta:
„Foreldri: Foreldri og/eða forsjáraðili barns samkvæmt ákvæðum barnalaga, sem og aðrir sem hafa gegnt foreldraskyldum gagnvart viðkomandi barni í lengri tíma en síðustu 12 mánuði fyrir barnsmissi.“
Þarna er miðað við að hafa verið forsjáraðili barns í 12 mánuði. Ég vil leggja til breytingu á þessu þar sem það er nú bara svo að það er ekkert alltaf sem börn hafa verið í 12 mánuði hjá einstaklingum sem fara með forsjá barnsins. Í fósturkerfinu hjá okkur gæti stundum frekar verið miðað við þrjá mánuði eða sex mánuði. Hvernig ætlum við eiginlega að skilgreina hvenær tengslin eru orðin það mikil að ég þurfi að fara í sorgarleyfi ef ég missi barn sem væri fósturbarn á mínu heimili? Mér finnst þurfa að taka tillit til fósturkerfisins og það þurfi aðeins að huga betur að því hvenær tengsl hafa verið mynduð. Fyrir mér mætti það þess vegna vera einn mánuður, en mér finnst að það þurfi bara að skoða þetta. Það er gott að þetta sé að fara til nefndar og mér fannst mikilvægt að fá umsagnir frá barnaverndaryfirvöldum, frá Félagi fósturforeldra og taka mið af fósturkerfinu og líka mið af því að stundum innan fósturkerfisins verður fósturrof og börn geta farið á milli fósturheimila.
Tengsl er eitthvað sem er svolítið persónubundið fyrirbæri og er á milli tveggja einstaklinga þannig að 12 mánuðir finnst mér vera of langur tími og mér finnst að það þurfi að endurskoða þessa grein og endurskoða þessi tímamörk sem talað er um þarna og athuga hvort það væri ekki betra að hafa þetta á milli einn til þrír mánuðir, alla vega ekki lengri tími en sex mánuðir. Þetta er það sem ég vildi segja um þessa grein.
Svo er talað hér um fullt nám, sem er þá 75% til 100% samfellt nám. Það er nú bara svo að það er mikið af fólki, sérstaklega ef við ræðum um konur sem hafa kannski verið að glíma við einhvers konar veikindi á meðgöngu og verða svo fyrir þeim sorglega og hræðilega atburði að missa fóstur, það er ekkert víst að þær hafi náð 75% námsskyldunni. Mér finnst þetta ríma svolítið við lögin sem eru sett um fæðingarorlof og fæðingarstyrk varðandi háskólanám og þar er bara fullt af einstaklingum sem ná ekki þessum mörkum og fá því ekki fæðingarstyrk nema upp á nokkra þúsundkalla. Mér finnst mjög mikilvægt að við tryggjum að fólk sem lendir í svona áfalli og er í háskólanámi eða í því námi sem það er, geti fengið sömu réttindi þrátt fyrir að hafa ekki verið í 75–100% námi. Það er nefnilega talað um 25% starfshlutfall en samt eru gerðar miklu ríkari kröfur um að fólk sé búið að standa sig mun betur í námi heldur en kannski á vinnumarkaði. Mér finnst það skjóta skökku við. Þetta er oft unga fólkið okkar, ekkert endilega alltaf en oft, og það hafa kannski verið einhver veikindi sem hafa gert það að verkum að fólk hefur ekki getað náð 75–100% námsárangri þá önnina. Það er talað um hér foreldra langveikra barna sem eru í námi og undanþágur gagnvart því. En það eru svo margar undantekningar til að mér finnst eiginlega að það sé full ástæða til að skoða hvort það sé ekki nóg að vera í hlutanámi, ekki í fullu námi.
Svo langar mig aðeins að ræða um 8. gr., þar sem rætt er um rétt foreldris til sorgarleyfis, en þar segir, með leyfi forseta:
„Sé um að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu á foreldri sjálfstæðan rétt til sorgarleyfis í allt að tvo mánuði frá þeim degi sem fósturlátið á sér stað.“
Ég velti því fyrir mér hvernig var komist að þessari niðurstöðu um 18 vikur en ekki t.d. 13 vikur og hvort það sé ekki raunhæft að endurskoða þetta vegna þess að auðvitað er þetta mjög persónubundið. Við skulum ekkert endilega gera ráð fyrir því að allir þurfi eða vilji taka sér sorgarleyfi. Það getur verið mjög persónubundið hversu mikið áfallið er hjá fjölskyldu þegar foreldri eða einstaklingur missir fóstur á 13. viku eða hjá annarri fjölskyldu sem er á 18. viku. Það er bara ekkert hægt að setja þar samasemmerki vegna þess að þetta er svo einstaklingsbundið. Þess vegna finnst mér frekar að mörkin ættu að vera rýmri en þrengri vegna þess að það er alls ekki svo að allir myndu endilega vilja fara í sorgarleyfi. Mér finnst að við þurfum að gefa einstaklingunum sjálfum meira færi á að taka þessar ákvarðanir út frá sér og út frá sinni fjölskyldu og hvernig þau eru að upplifa fósturmissinn. Fyrir mér mætti þetta þess vegna vera 10–12 vikur. Mér finnst bara að það þurfi að skoða þetta, það þurfi að fá umsagnir frá fólki og frá einhvers konar sorgarsamtökum, frá fólki sem hefur misst börn og skoða þetta til hlítar. Það er auðvelt að skrifa 18 vikur en þetta er bara svo persónubundið, þetta er bara svo mismunandi.
Annars finnst mér þetta bara mjög spennandi, að þetta mál sé komið fram og það sé verið að vinna að þessu og ég vona bara að það verði gert gaumgæfilega og það verði fengnir sem flestir einstaklingar að borðinu til að skoða þetta frumvarp til laga til hlítar.