152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

samþjöppun í sjávarútvegi.

[15:17]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég átta mig á því að hæstv. ríkisstjórn vill hvorki ýta undir nýliðun með útboði né freista þess að fá hærri veiðigjöld. Þau horfa hins vegar á útboðsmarkaði útgerðarinnar þar sem kíló af þorski er leigt á 300 kr. Á sama tíma er veiðigjaldið fyrir kíló af þorski rúmar 17 kr. sem renna í ríkissjóð. Ég skil hæstv. ráðherra þannig að hann telji að það þurfi að safna fleiri gögnum og skrifa fleiri skýrslur. Ég vil því spyrja hvort skýrslurnar og gögnin sem fyrir liggja séu ekki nægileg. Koma þau ekki að gagni? Kemur skýrsla verkefnisstjórnar um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni, sem skilað var í lok árs 2019, ekki að gagni? Þar er brugðist við ábendingum í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um eftirlit með samþjöppun aflaheimilda. Er hæstv. ráðherra ekki sammála því að endurskoða þurfi lögin strax í þeim anda sem verkefnisstjórnin lagði til og ekki þurfi að bíða eftir fleiri skýrslum til að vinna gegn skaðlegri samþjöppun í greininni?