skýrsla Ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðismál.
Virðulegur forseti. Þetta svar frá hæstv. ráðherra kom svo sem ekki á óvart. Því hefur hins vegar ekki verið svarað sem ég spurði um. Það er verið að gera svona skýrslur og úttektir með reglulegu millibili og niðurstaðan er alltaf sú að þessi mál eru ekki í lagi. Þetta hljótum við að þurfa að heimfæra upp á þá flokka sem farið hafa með völd í landinu til að mynda nánast óslitið frá árinu 2013. Og af því að það var rætt um gráu svæðin þá er kannski ágætt að nefna það sem kemur fram í skýrslunni, að þau eru mörg hver þekkt en það gengur illa að fækka þeim. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:
„Ástæðu þess má m.a. rekja til ágreinings um ábyrgðar- og kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga og óskýr[rar] ábyrgðarskipting[ar] milli þjónustustiga heilbrigðiskerfisins. Óforsvaranlegt er að þessi mál liggi óleyst árum saman og þurfa stjórnvöld að gera gangskör að því að útrýma gráum svæðum.“
Ég velti því fyrir mér í mikilli einlægni: Af hverju hafa þessi mál legið óleyst árum saman þegar mikið af þessu hefur verið þekkt, eins og dregið er fram í skýrslunni? Það fæ ég ekki skilið. Og úr því að það er ekki búið að laga þetta eftir allan þennan tíma, og vitna ég þá til langs valdatíma þessara flokka sem hér sitja við ríkisstjórnarborðið, af hverju ætti fólkið í landinu geta treyst því að þetta verði yfir höfuð lagað? Hvað þarf mörg ár til?