152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðismál.

[15:32]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Það er kannski rétt sem hv. þingmaður segir hér, að hann hafi ekki fengið einhlítt svar við því að þessi skýrsla sé áfellisdómur yfir þessari ríkisstjórn, yfir því hvað við höfum gert í geðheilbrigðismálum. Ég get svarað því að ég met svo ekki. Mér finnst hún hins vegar mjög góð og hún gefur okkur tilefni til að ná betur utan um fjölmörg mál, m.a. gráu svæðin í þessu, og skipuleggja okkur betur og fylgja betur eftir þeim aðgerðaáætlunum sem við förum í. En mér finnst alveg tilefni hér, virðulegi forseti, til að rifja upp hvað hefur verið gert bara á umliðnum árum af þessari ríkisstjórn. Það er búið að setja inn aukið fjármagn. Það er þverfagleg geðheilbrigðisþjónusta í heilsugæslu. Það voru settar 800 milljónir sérstaklega í það verkefni. Það er búið að setja samtals yfir 2 milljarða m.a. í þverfagleg geðheilsuteymi fullorðinna, sérstakt geðheilsuteymi fyrir fanga sem við erum nú búin að framlengja. Það er verið að taka á þessum biðlistum og verið að fara yfir geðheilsumiðstöð barna og sameina þessa málaflokka (Forseti hringir.) til að ná betur utan um skörunina. Ég gæti lengi talið og við munum halda þessu áfram.