152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

stjórn veiða á grásleppu.

[15:39]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Vegna þess sem ég nefndi hér í mínu fyrra svari að það væri ágreiningur innan greinarinnar þá er það auðvitað bara staðreynd að svo er. Ég hef verið í sambandi við mjög marga aðila á þessu sviði og það eru sannarlega ýmsar skoðanir uppi í hópnum. Það er staðreynd að það er ekki ein rödd meðal þeirra einstaklinga sem veiðarnar stunda. En það breytir því ekki að ég hef átt mjög marga fundi og hlusta sannarlega eftir þeim röddum sem þar koma fram. Ég er sammála þeim sem leggja á það áherslu að það þarf að ná skipulagi á þessar veiðar og á þetta kerfi. Hver niðurstaðan nákvæmlega verður í því kemur í ljós á minni þingmálaskrá fyrir næsta þing. Ég vænti þess að um það frumvarp gildi að það fái góða og efnislega umfjöllun í atvinnuveganefnd.