152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk.

[15:42]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hv. þingmaður nefnir hér mjög mikilvægt mál sem er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna. Við vitum það að eldra fólki mun hlutfallslega fjölga mjög mikið á næstu árum og sennilega verða um 20% af mannfjöldanum árið 2040. Þess vegna er mjög mikilvægt að við náum vel utan um þessa heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk. Ég vil að við notum áratug heilbrigðrar öldrunar, sem núna er í gangi, til þess að ná utan um þetta og stígum mikilvæg skref á þessu kjörtímabili í þá átt. Hv. þingmaður fór ágætlega yfir hvaða atriði þarf að taka fyrir í heildarendurskoðuninni og má þar nefna að við erum að tryggja eldra fólki þjónustu við hæfi, hvort sem það er stuðningsþjónusta eða heilbrigðisþjónusta, sem þýðir þá samþætting félagsþjónustunnar og m.a. heimahjúkrunar. Þetta kallar augljóslega á þverfaglegt samstarf milli ráðuneyta félagsmála og heilbrigðismála. Þess vegna höfum við hæstv. heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórsson ákveðið að skipa sameiginlega verkefnisstjórn sem vonandi getur tekið til starfa í lok mánaðarins. Við erum að bíða eftir síðustu tilnefningunum. Í henni munu eiga sæti fulltrúar okkar ráðuneyta, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, Sambands sveitarfélaga og Landssambands eldri borgara. Hlutverk þessarar verkefnisstjórnar verður að leiða þá mikilvægu vinnu. Við erum að vonast til að geta lagt fram aðgerðaáætlun einhvern tímann í haust með aðgerðum sem ráðast þarf í í framhaldinu.