152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk.

[15:45]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er ánægjulegt að heyra að heilbrigðisráðherra muni vinna með honum að þessu því að þessi málaflokkur tengist einmitt báðum þessum ráðuneytum.

Aðgerðir í átt að tvöföldun frítekjumarks atvinnutekna eldra fólks voru samþykktar í lok árs 2021 þar sem frítekjumarkið vegna atvinnutekna fór úr 100.000 kr. í 200.000 kr. á mánuði. Ég vil spyrja ráðherra hvort hann hafi orðið var við aukningu á atvinnuþátttöku eldra fólks í kjölfarið, þótt skammt sé nú liðið frá þessari ákvörðun, og í hvaða starfsgreinum hún hefur orðið og hvort einhver munur sé á atvinnuþátttöku með tilliti til kynja.