heildarúttekt heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og spurningar þingmannsins til ráðherra og það sem ráðherrann kom fram með og væntanlega skýrslu. Mig langar aðeins til að grípa boltann frá síðasti ræðumanni varðandi að það þessi fjölbreytileiki mætti vera meiri og ég hef mikið talað fyrir því á síðasta þingi og á síðasta kjörtímabili. Ég hef haft áhyggjur af biðlistunum. Það eru 500–800 manns á biðlistum ár eftir ár og þessi gluggi sem hv. þm. Sigmar Guðmundsson kom inn á áðan, þegar viðkomandi fíkniefnasjúklingur er tilbúinn til að fara í meðferð, er mjög lítill. Þess vegna þurfa meðferðarúrræðin að vera opin og fjölbreytt og úti um allt. Á það myndi ég leggja ríka áherslu á og hef gert lengi. Hvort þetta eigi að vera frjáls félagasamtök eða ríkisrekið — mér finnst það eiga að vera í bland. Hvort tveggja hefur komið mjög vel út (Forseti hringir.) og samstarf milli ríkis og félagasamtaka hefur verið bara nokkuð gott í gegnum árin.