heildarúttekt heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma.
Virðulegi forseti. Ég tek undir það að þetta er mjög mikilvæg umræða sem fer hér fram. Ég held einmitt að við þurfum að hafa í huga að úrræðin þurfa að vera sem fjölbreyttust og það eru ólík úrræði sem duga fyrir ólíka einstaklinga þannig að þetta snýst um að hafa nógu fjölbreytt úrræði og það sé ekki bara ein ríkisleið sem við ákveðum að fara af því að við erum jafn misjöfn og við erum mörg. Við þurfum að huga að því og þá finnst mér ekki rekstrarformið skipta helst máli heldur að þeir sem sýna frumkvæði og líka þeir sem kunna að gera þetta á sem skilvirkastan og hagkvæmastan hátt fái tækifæri til þess þótt þeir séu ekki opinberir starfsmenn. Svo þurfum við að búa til eitthvert kerfi og viðurkenna það að allar aðferðir geta ekki verið gagnreyndar af því að einhvers staðar þarf að byrja með aðferðirnar áður en þær verða gagnreyndar. Við þurfum að vera opin fyrir því að hafa fjölbreytt úrræði þótt þau séu ekki öll orðin gagnreynd.