heildarúttekt heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma.
Virðulegur forseti. Mig langar að þakka málshefjanda fyrir að taka þetta mál á dagskrá því að þetta er auðvitað mjög mikilvægt. Það er ekkert langt síðan við vorum ekki með nein meðferðarúrræði á Íslandi fyrir fólk sem var að glíma við vímuefnavanda heldur gerðist það bara að ákveðnir aðilar fóru til Ameríku og fóru þar í meðferð og komu síðan heim með þessa þekkingu, eldhugar sem brunnu fyrir málefninu og settu upp þau meðferðarúrræði sem við höfum í dag og standa hvað best upp úr. Ég vil bara fá að þakka þeim fyrir brautryðjandastarf. En það er auðvitað þannig að það má þróa allt og við eigum að sníða af vankanta. Ég sé t.d. ekkert því til fyrirstöðu að frjáls félagasamtök séu að reka meðferðarúrræði. Ég vil frekar kalla þetta almannaheillasamtök af því að þau eru það. Ríkið verður auðvitað bara að ákveða hvaða þjónustu á að veita og treysta síðan þessum aðilum fyrir því að veita hana.