heildarúttekt heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma.
Frú forseti. Þar spilar margt inn í það hvernig fólk nær að nýta sér meðferðarúrræðin. Mig langar að spyrja ráðherrann hvort við getum rætt einhverjar úrbætur á heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma án þess að gera það í samhengi við afglæpavæðingu neysluskammta vímuefna. Ég spyr hvort ráðherra telji yfir höfuð raunhæft að ætla áfram að refsa fólki en á sama tíma að endurskoða og efla þjónustu við fólk sem snýr nákvæmlega að því sem ríkið er að refsa því fyrir, neyslu vímuefna. Ég hef nefnilega, frú forseti, áhyggjur af því hversu lengi ríkisstjórnin hefur móast við að klára það mál síðan það var fellt hér í þingsal fyrir tveimur til þremur árum. Hvar er afglæpavæðingin sem fólkið sem treystir á meðferðarúrræðin þarf svo sárlega á að halda?