heildarúttekt heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma.
Forseti. Skaðaminnkun er mjög mikilvæg og við þurfum að beita okkur fyrir henni. Oft hefur fólki ekki verið hleypt í meðferð, eða ekki leyft að halda áfram, vegna þess að það er ekki edrú og það er náttúrlega ekki í samræmi við skaðaminnkun. Það þarf líka að leggja áherslu á að bjóða einstaklingi upp á geðheilbrigðisaðstoð þó að hann sé enn í vímuefnaneyslu. Það er ekki eins og þetta séu tveir mismunandi hlutir. Að glíma við geðvanda og vera í vímuefnaneyslu eru verkefni sem þú þarft að takast á við samhliða. Þú getur ekki bara hætt neyslu og farið síðan að vinna í geðvandanum eða öfugt. Það þarf að huga miklu betur að skaðaminnkun og gagnreynd úrræði eru best. Og þau eru til ef vilji er til þess að innleiða þau á Íslandi. Það er til fullt af flottum gagnreyndum úrræðum með skaðaminnkun í huga. Auðvitað þarf að mæta einstaklingnum þar sem hann er, en gagnreynd úrræði eiga alltaf að vera fyrsta úrræðið.