152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

heildarúttekt heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma.

304. mál
[16:12]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Jódís Skúladóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég gleðst einlæglega yfir þeirri umræðu sem hér hefur farið fram. Þetta er málaflokkur sem snertir okkur öll. Þetta er heilbrigðisþjónusta og ég hef svo ótal margt að segja og svo ótrúlega fáar sekúndur til að koma því frá mér. Mig langar að taka það fram í upphafi að ekki aðeins ólst ég upp á drykkjumannahælinu Gunnarsholti fyrstu sex æviár mín heldur hef ég bæði verið notandi, aðstandandi, launaður starfsmaður og sjálfboðaliði innan hins íslenska meðferðarkerfis. Hér hefur ýmislegt komið fram. Mig langar að benda á að við megum ekki í þessari umræðu, ekki frekar en þegar við erum að tala um aðra heilbrigðisþjónustu, fara bara inn í tilfinningarnar. Við eigum öll ættingja sem hefur fengið yfirburðagóða þjónustu hjá SÁÁ. Það breytir því ekki að með klínískri aðkomu verður að vera eftirlit, hvort sem er með fjármagni, biðlistum, þjónustu, lyfjagjöf. Þetta þarf að vera undir eftirliti ríkisins. Ég er oft vænd um það að vera eitthvað sérstaklega á móti SÁÁ, sem ég er ekki. Þar tel ég gríðarlega reynslu og þekkingu vera en ég ætla ekki að taka undir með hv. þingmanni sem sagði að þetta væri svo nýtt af nálinni. Þetta eru orðnir áratugir sem íslenskt meðferðarkerfi hefur verið í gangi.

Mig langar að spyrja hv. þm. Vilhjálm Árnason hvort við eigum að taka þá upp sömu aðferðafræði varðandi barnalækningar, öldrun og krabbamein, að bara leyfa því að slæda og svo þegar reynslan kemur getum við farið að nota gagnreyndar klínískar aðferðir.

Mig langar að lokum að hvetja ráðherra til dáða. Þetta má ekki vera pólitískt. Þetta má ekki vera byggt á hugmyndafræði gúrúa, 12 spora samtaka eða sveppakakófólks, (Forseti hringir.) eins og við höfum séð í umræðunni undanfarið. Þetta verður að vera faglegt, undir eftirliti (Forseti hringir.) og við þurfum að gera betur, hafa fleiri úrræði og meiri pening. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)