heildarúttekt heilbrigðisþjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jódísi Skúladóttir og það hefði kannski verið við hæfi að hennar lokaorð hefðu verið látin duga. Þau voru mjög góð, virðulegur forseti, og ég þakka jafnframt þeim sem tóku þátt í þessari mikilvægu umræðu. Ég var búinn að svara fyrstu tveim spurningunum. Spurning þrjú sneri að rekstrarforminu og spurning fjögur að stefnu í málaflokknum, sem kallað er eftir og ég tek heils hugar undir. Það er nauðsynlegt að fá þessa heildarúttekt til að vera í einhverjum færum til að segja hvert skuli raunverulega stefna. Varðandi rekstrarformið er ég sammála öllu því sem sagt er hér um fjölbreytnina, um nýjustu þekkingu, um gagnreyndar aðferðir og þær aðferðir sem reynsla er af að virki um þverfaglegu nálgunina. Þetta eru alger lykilatriði í veittri þjónustu og á hvaða sviði sem er raunverulega. Við eigum ekki að láta rekstrarformið trufla okkur í því. Við eigum bara að gera þessar kröfur. Við höfum það fyrirkomulag hér á til að tryggja eftirlitið og kröfurnar um gæði og skráningar og allt það sem því fylgir að Sjúkratryggingar sjái um að semja um kaup á heilbrigðisþjónustu. Ég fæ ekki annað séð af því sem ég hef kynnt mér en að allir séu alltaf að reyna að gera betur og bæta um á þessu sviði og svo er að sjálfsögðu mikilvægt að embætti landlæknis hefur samkvæmt lögum eftirlit með allri heilbrigðisþjónustu. Hvert skal stefna? Ég bíð þessarar heildarúttektar og þá eigum við að fara af krafti í það að móta heildarstefnu í þessum málaflokki þannig að við getum samþætt og veitt betri þjónustu á þessu sviði en áður.