152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

aðkoma Alþingis að sóttvarnaráðstöfunum í heimsfaraldri.

362. mál
[16:43]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka fyrir mikilvæga umræðu. Ég tel mikilvægt og tek undir að það verður í svona mikilvægum málum, og ég tala nú ekki um þegar mannréttindi og frelsi fólks eru í húfi, að vera mjög skýr tenging við lýðræðislega kjörna fulltrúa okkar ágæta samfélags. Ég átta mig á því að við höfum áður rætt hér um ákveðna áskorun varðandi þrígreiningu ríkisvalds og fagna því að geta rætt það frekar þegar aðeins rýmri tími er til. En mig langaði að fá að nefna hér að þrátt fyrir að ég taki undir með hæstv. ráðherra að margt hafi gengið ágætlega í viðleitni okkar til þess að ráða bug á þessum faraldri á sínum tíma þá var eitt af því sem var ekki alveg nógu heppilegt, þótt það eigi sér útskýringar, það að búin var til aftenging, að annaðhvort værum við að fylgja vísindunum og hins vegar að hlusta á pólitíkusana svokallaða eða þá sem bera hina lýðræðislegu ábyrgð. Ég held að í þessu, sem og auðvitað í öllum stjórnarmálefnum, þurfi að vinna með bestu gögn á hverjum tíma en aftengja ekki lýðræðislegu ábyrgðina. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)